Ruslpóstvarnir

Ruslpóstur, eða SPAM, er vágestur sem herjar daglega á fyrirtæki og einstaklinga. Ruslpóstur getur falið í sér öryggishættu og dregur úr framleiðni starfsmanna og því er mikilvægt að verja tölvukerfið með öflugum ruslpóstvörnum.
Sérfræðingar Opinna kerfa hafa innleitt og þjónustað ruslpóstvarnir í fjölmörg ár hjá stórum og smáum fyrirtækjum.