Prophix áætlanagerðarlausn

Prophix er áætlanagerðarlausn sem tekur á öllum þeim þáttum sem varðar áætlunargerð og styður flest öll þau bókhaldskerfi sem eru í notkun í dag. Kerfið notar Microsoft SQL sem sinn gagnagrunn og eru leyfisgjöld fyrir Microsoft SQL innifalin í verði kerfisins.

Kerfið státar af mjög auðveldum ferlum við alla vinnslu hvort sem það er að lesa gögn frá undirliggjandi kerfum , uppsetning áætlunarskjala, uppsetning á útreikningum, vinnuflæði áætlunar, aðgangsstýring, utanumhald við sjálfa áætlunargerðina eða stýring samþykktarferlis. Úrtak getur síðan verið með endurskrift niður í undirliggjandi kerfi, í skýrsluformi sem hægt er að stilla sjálfvirk ferli með aðgangsstýringum eða yfir í SharePoint 2010 svo ekki sé talað um að samþætta gögn yfir í viðskiptagreindarhugbúnað sem býður upp á enn fleiri möguleika.

Prophix var stofnað 1987 í Canada með höfuðstöðvar í Toronto og starfar nú í yfir 60 löndum um allan heim. Fyrirtækið starfar eingöngu á sviði áætlanargerðar og hefur þróað Prophix sem heildarlausn á sínu sviði.

Greinendur hafa ausið lofi yfir lausnina sem má kynna sér með því að horfa á þetta 8 mín. Myndbrot.

Nánari upplýsingar um Prophix veitir Stefán Rafn Stefánsson, stefan(hjá)ok.is í síma 570-1000.

  • Prophix

    Áætlanagerð sem skilar árangri