
Viðskiptagreind
Allir stjórnendur standa frammi fyrir því að taka ákvarðanir í sínu starfi. Í nútímarekstri liggja gögn víða um fyrirtæki og er helsta áskorunin við ákvarðanatöku sú að sækja þær upplýsingar sem þarf til að taka góðar og ábyrgar ákvarðanir. Þetta er helsta ástæðan fyrir því að viðskiptagreind er ört stækkandi þáttur í rekstri fyrirtækja í dag. Opin kerfi hafa um árabil veitt ráðgjöf og innleitt ferla jafnt sem lausnir hjá viðskiptavinum sem stuðla að betri upplýsingum og ákvarðanatöku og skapa þeim samkeppnisforskot á markaðinum.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

