
Red Hat Linux Námskeið
Opin kerfi hafa verið útnefnd sem þjálfunarsetur fyrir Red Hat Linux- stýrikerfið hér á landi en það stýrikerfi er notendavæn útgáfa af Linux-stýrikerfinu.
Viðurkenningin þýðir að Opin kerfi eru eina fyrirtækið á landinu sem hefur leyfi til að halda Red Hat-námskeið og útskrifa sérfræðinga í Red Hat Linux-stýrkerfinu með RHCE-gráðu (Red Hat Certified Engineer). Red Hat var stofnað árið 1994 og byggir starfsemi sína á sölu sérútgáfu sinnar af Linux, þróun þess og þjónustu við notendur. Samstarf Opinna kerfa og Red Hat hófst í upphafi árs 1999 og hefur síðan aukist verulega.

Um okkur
Veftré
Hafa samband

