Ráðgjöf

[ráð] -s, HK ráðlegging, ráðagerð, tillaga

Opin kerfi hafa á að skipa öflugu teymi sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni, t.a.m. á sviði vélbúnaðar, grunnkerfa, netkerfa, samskiptalausna, skrifstofulausna og annarra hugbúnaðarlausna. Sérfræðingar okkar hafa unnið við ráðgjöf, þjónustu og innleiðingu upplýsingatæknilausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins.


Opin kerfi byggja á traustu samstarfi við einhver stærstu upplýsingatæknifyrirtæki heims, HP, Microsoft og Cisco. Félagið hefur byggt upp mikla þekkingu á umfangsmiklu vöruframboði og samningsleiðum þessara framleiðenda. Jafnframt hefur félagið á að skipa einu öflugasta teymi landsins á sviði opins hugbúnaðar og hefur verið leiðandi á því sviði um árabil.


Ráðgjafar Opinna kerfa bjóða viðskiptavinum ráðgjöf um leiðir til hagræðingar og sparnaðar á grundvelli yfirgripsmikillar þekkingar og reynslu. Hvort sem ráðgjöfin snýr að því að ná hámarks arðsemi úr Microsoft umhverfi, meta arðsemi af innleiðingu opins hugbúnaðar, hámarka nýtingu vélbúnaðar eða að framkvæma heildstætt mat með heildarúttekt á rekstrarumhverfi, geta sérfræðingar Opinna kerfa aðstoðað viðskiptavini við að setja fram markvissar og raunhæfar áætlanir og veitt öflugan stuðning við að þeim sé náð.