27. apríl 2010

Opin kerfi og Snerpa gefa Sjálfsbjörgu fartölvu.

Opin kerfi og Snerpa færðu á dögunum Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra í Bolungarvík, hagkvæma og meðfærilega Compaq 610 fartölvu þar sem þörf var á tölvu fyrir sérkennslu hjá Grunnskóla Bolungarvíkur. Ragnar Aron Árnason hjá Snerpu færði Rúnari Arnarsyni ferðavélina og kom fram við það tækifæri að hún muni nýtast vel við sérkennslu fyrir fatlaða í Grunnskóla Bolungarvíkur. Það var Opnum kerfum sönn ánægja að fá að taka þátt í þessu verkefni.

Opin kerfi og Snerpa eru samstarfsaðilar um þjónustu og rekstur á upplýsingakerfum á norðanverðum Vestfjörðum. Í samstarfinu hefur sérstaklega verið horft til þess að bjóða upp á Alrekstur fyrir fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Alrekstrarmótelið byggir á því að fyrirtæki og stofnanir geta keypt sér tölvudeild eða hluta tölvudeildar til að reka upplýsingakerfi viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar.

Hópurinn sem veitti tölvunni viðtökur ásamt Ragnari Aroni Árnasyni. Mynd: snerpa.is

Til baka | Aðrar fréttir