2. júní 2010

Vertu uppfærður

Vertu uppfærður til að standast nýjustu ógnir.

Flestir sem koma að rekstri tölvukerfa í dag eru sammála um mikilvægi eldveggja í tölvukerfum. Hugbúnaðurinn sem stýrir eldveggnum er í raun vitræni hluturinn og það er hann sem skiptir mestu máli. Eins og með hvern annan hugbúnað t.a.m. vírusvarnir þarf því að uppfæra þennan hugbúnað reglulega svo hann þjóni hlutverki sínu sem best.

Cisco sendir reglulega frá sér uppfærslur og viðbætur á stýrikerfi eldveggja. Til þess að tryggja það að eldveggurinn sé sem skilvirkastur, þekki ný árásarmynstur o.þ.h., hvetjum við alla okkar viðskiptavini til að ganga úr skugga um það að þeir séu með nýjustu uppfærslur, bæði meiriháttar sem og minniháttar. Fullyrða má að nánast allir eru í dag með áskrift af vírusvarnarhugbúnaði fyrir útstöðvar og netþjóna til að hindra að röskun verði á tölvukerfunum vegna vírusárása og annarra óværa, en hugsa minna um að uppfæra eldvegginn.

Hugleiðum hvaða áhrif það hefur á tölvukerfið ef hægt er að setja eldvegginn á hliðina. Hver er kostnaðurinn við að koma tölvukerfinu aftur í samt lag - eftir að hakkarar hafa notfært sér veilur til að ráðast á það - samanborið við kostnaðinn við að hafa eldvegginn á uppfærslusamningi? Tvær leiðir eru í uppfærslu: Cisco þjónustusamningur um uppfærslur á hugbúnaði og staðkvæmdarþjónustu búnaðar eða kaup á hugbúnaðarleyfinu einu og sér.

Hugbúnaðarleyfið kostar um 99 þúsund krónur* plús vsk. og er einskiptis uppfærsla en sú upphæð jafngildir kaupum á einum Windows Standard Server óháð frá því hvaða týpu af ASA boxi þú ert að keyra.

Opin kerfi bjóða viðskiptavinum Cisco aðgengissamninga sem innifela:
• Vélbúnaðarábyrgð á viðbragði frá næsta virka degi á skrifstofutíma og niður í 2 tíma 24/7
• Hugbúnaðaruppfærslur
• Cisco.com aðgengi
• TAC aðgengi

Samningsverð eru árgjöld og reiknast út frá týpunúmeri ASA boxins og viðbragði á samningi. Sem dæmi um árgjöld:
Fyrir ASA 5505 er árgjaldið allt frá 7.500kr. m/vsk.
Fyrir ASA 5510 er árgjaldið allt frá 55.000kr. m/vsk.
Fyrir ASA 5520 er árgjaldið allt frá 98.000kr. m/vsk.
*m.v. gengi USD 20.05.2010



Viðbót við 8.3 : Cisco ASA Botnet filtering
Nýjasta útgáfa af stýrikerfinu er 8.3. Til viðbótar er hægt að kaupa svokallaðan Botnet Filter eiginleika sem er ekki hluti af grunnhugbúnaði. Í dag er sífellt erfiðara að greina Malware og Spyware þar sem margar heimasíður sem notendur telja „löglegar“ eru sýktar af óværum eða eru falskar. Eigendur slíkra síðna nýta sér gjarnan samfélagsvefi og aðrar gagnvirkar síður til að koma fyrir hvers kyns hugbúnaði á tölvur viðkomandi og taka þær síðan yfir. Botnet Traffic filterinn greinir hvaða tölvur innan tölvukerfis eru sýktar, hvert þær sækja og hvaða síður eru ekki löglegar. Hérna er mögulegt að sjá nánar hvað um ræðir: Cisco ASA Botnet Traffic Filter

Þessi viðbót er seld í áskrift þar sem notendur greiða árgjald af þessum hugbúnaði. Hér skiptir máli hvaða stærð eldveggjar er í notkun líkt og með samningana hér að ofan. Þessi viðbót gerir kröfu á meira innra minni en staðlað er og þarf því samhliða Botnet áskrift að kaupa minnisuppfærslu. Þetta er því stofnkostnaður upp á um þrjátíu þúsund krónur og svo árlegur kostnaður upp sem fylgir að hafa samning á eldvegginn.

Nánari upplýsingar veita Þórður Jensson thordurj@ok.is og Anna Lovísa anna@ok.is hjá Opnum kerfum.

Til baka | Aðrar fréttir