2. september 2010

Opin kerfi valin í rammasamningsútboði um hýsingu og rekstrarþjónustu

Opin kerfi voru valin í rammasamningsútboði á Hýsingu og rekstrarþjónustu. Fyrirtækið var valið í öllum flokkum og gefur því kost á að bjóða opinberum fyrirtækjum og stofnunum þjónustu úr öllum skilgreindum þjónustuflokkum hýsingar og rekstrar:


• Hefðbundin hýsing
• Aðgengi að þjónustuborði
• Viðvera
• Gagnahýsing
• Afritunarþjónusta
• Útstöðvaþjónusta
• Póstþjónusta
• Streymun

Til baka | Aðrar fréttir