3. nóvember 2011

Arctic Trucks einfalda reksturinn með Alrekstri Opinna kerfa

Arctic Trucks hafa um árabil nýtt sér útvistunarlausnir frá Opnum kerfum til þess að einfalda rekstur sinn. Sérfræðingar Opinna kerfa mynda eiginlega tölvudeild Arctic Trucks. Þeir ganga í öll hefðbundin störf kerfisstjóra hvað varðar umsjón, ráðgjöf og áætlanagerð. "Við hefðum þurft að ráða starfsmann tilað annast tölvumálin en sáum okkur hag í að leita til Opinna kerfa og geta sótt í sterkt net sérfræðinga þar. Þá er kostnaður við rekstur kerfisins 90% ljós fyrir fram,“ segir Herjólfur Guðbjartsson, fjármálastjóri Arctic Trucks og heldur áfram. „Með alrekstri frá Opnum kerfum fengum við þjónustu sérfræðinga, nauðsynlegan tæknibúnað, hugbúnað og tryggan rekstur á hagkvæman máta." Emil Grímsson, stjórnarformaður Arctic Trucks, tekur undir það með Herjólfi að samningurinn hafi reynst vel. „Alrekstur Opinna kerfa stóð upp úr öðrum lausnum hvað varðar einfaldleika og hagkvæmni því þar fengum við heildarpakka. Við sáum að við gátum einbeitt okkur að okkar starfsemi og gert það sem við gerum best. Opin kerfi sjá um tölvukerfið.“

Í dag birtist grein um samstarf Opinna kerfa og Arctic Trucks í fréttablaðinu.

Nánari upplýsingar um útvistunarlausnir má sjá  á www.ok.is/utvistun.

Til baka | Aðrar fréttir