24. nóvember 2011
Innflutningur á fölsuðum rafhlöðum stöðvaður

Athygli vekur að nýlega stöðvaði tollgæslan nokkrar póstsendingar sem innihéldu töluvert magn af fölsuðum Nokia rafhlöðum samkvæmt frétt á mbl.is. Sendingarnar komu frá Hong Kong og var sama fyrirtækið innflutningsaðili á sendingunum.
Veruleg slysahætta getur í mörgum tilfellum verið af slíkum rafhlöðum hvort sem um er að ræða rafhlöður í fartölvur, síma eða aðra hluti. Opin kerfi selja einungis upprunalegar rafhlöður frá HP og öðrum framleiðendum þar sem fremstu gæðastöðlum er fylgt við framleiðslu. Biðjum við fólk að vera á varðbergi gagnvart þessu.
Lesa má nánar um þetta á www.mbl.is.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

