Verne Global velur Opin kerfi

Alþjóðlega fyrirtækið Verne Global sem opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ, tilkynnti í gær að það hefur valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. “Samstarf með fremsta þjónustuaðila landsins mun gera okkur kleift að hámarka ávinning viðskiptavina okkar,“ segir Tate Cantrell, framkvæmdastjóri tæknisviðs Verne Global.
Samhliða þessum samningi mun Opin kerfi flytja hýsingarstarfsemi sína og innri kerfi í gagnaver Verne Global. “Með þessari samþættingu á starfsemi fyrirtækjanna er lagður grunnur að öflugu samstarfi sem mun styðja við okkur og viðskiptavini okkar,“ segir Tate.
Á blaðamannafundi sem Verne Global hélt á Hilton hótel í gær, var Gunnar Guðjónsson forstjóri Opinna kerfa, spurður út í hæfni íslensks atvinnulífs til að mæta þörfum gagnaversiðnaðar. „Sé litið til menntunarstigs íslensks vinnuafls, fjölda fyrirtækja í upplýsingatæknitengdri starfsemi, gæði menntastofnana okkar og fjölda nemenda í tæknitengdum greinum, er enginn vafi á að Ísland hefur alla burði til þess að gera vel á þessum vettvangi. Framtíðin er spennandi og krefjandi en íslenskt samfélag þarf að aðlagast hratt og áherslur stjórnvalda og menntastofnana varðandi tæknitengt nám þarf að skerpa og styðja enn betur,“ svaraði Gunnar.
Verne Global er að þróa fyrsta gagnaver heims með jafnvægi í kolefnisútblæstri. “Með opnun gagnaversins er verið að mæta mikilli eftirspurn um hagkvæmni eignarhaldskostnaðar upplýsingatæknikerfa er byggir á vistvænni orku. Fjöldi erlendra fyrirtækja horfir til þess að nýta sér þetta einstaka hátækni gagnaver fyrir starfsemi sína. Opin kerfi er fyrirtæki með farsæla sögu, tryggan rekstur, einvala lið sérfræðinga og traust samband við erlenda birgja á borð við HP, Cisco, VM-Ware, Redhat og Microsoft. Þessir þættir og fleiri koma til með að tryggja viðskiptavinum Verne Global þá þjónustu og þann stuðning sem þeir þurfa til að ná árangri,“ segir Gunnar.
Tilkynning Verne Global hefur vakið nokkra athygli og fengið umfjöllun í erlendum vefmiðlum, m.a:


Um okkur
Veftré
Hafa samband

