Nýir sérfræðingar hjá Opnum kerfum

Agnar Örn Arason er nýr starfsmaður á Búnaðarsviði Opinna kerfa.
Agnar er sérfræðingur í afritunarlausnum - HP Data Protector og starfaði síðustu ár hjá Skyggni (Nýherja), en áður hjá Flögu og Seðlabankanum.

Ármann Guðjón Valsson er nýr starfsmaður á Lausnasviði Opinna kerfa.
Hann starfaði áður hjá Arion banka í tækniþjónustu og kemur sterkur inn í útvistunarhópinn okkar með mikla og góða reynslu.
Ármann er 28 ára og ættaður af Suðurnesjum.

Úlfar Ragnarsson er einnig nýr starfsmaður á Lausnasviði Opinna kerfa og gengur sterkur til liðs við útvistunarhópinn ásamt Ármanni.
Hann starfaði áður hjá KPMG og LSH.
Úlfar er öflugur körfuknattleiksmaður, hestamaður og veiðimaður og hefur almennt áhuga á útivist.
Hjartanlega velkomnir í hópinn strákar!


Um okkur
Veftré
Hafa samband

